Tempur Prima Plus Soft – Smartcool, 25 cm þykk heilsudýna

Tempur Prima Plus Soft Smartcool

Dýna sem aðlagast þér á þann hátt sem þú hefur aldreið upplifað. Nú með svölu yfirborði sem gefur þér frískandi og ferska tilfinningu alla nóttina.

Nýja Tempur Advanced efnið í Tempur Prima Plus veitir 20% meiri þrýstijöfnun. Efnið aðlagast enn betur að líkama þínum og dregur til muna úr hreyfingu svo þú upplifir þægindi og stuðning á einstakan, nýjan hátt.

Tempur Prima Plus Soft er notalega mjúk dýna með góðri aðlögun og stuðningi. Tempur Prima Plus er 25 cm há og er mest selda dýna Tempur. Með meira lagi af Tempur efni gefur hún enn meiri aðlögun og stuðning.

Tempur Prima Plus er 25 cm há og er mest selda dýna Tempur. Með aukalagi af Tempurefni býður hún upp á enn meiri aðlögun og stuðning.

Áklæði dýnunnar er með SmartCool™ tækni sem tryggir að yfirborð hennar helst svalt viðkomu. Efnið gleypir allan umfram líkamshita sem skilar sér í ferskri og hreinni tilfinningu alla nóttina.

Áklæði dýnunnar er auðvelt að taka af og þvo í þvottavél. Þessi eiginleiki mun hjálpa þér að halda dýnunni hreinni og ferskri. Áklæðið með Smartcool eiginleikanum þolir þvott á allt að 40 gráðum.

Tempur leggur mikið upp úr sjálfbærni og því að framleiða vörur sínar úr skaðlausum og einföldum efnum sem má endurnýta. Made in Green er vottun sem kynnt var fyrst árið 2015. Hún gefur þér fullvissu og miðlar á sama tíma sjáfbærniskilyrðum Tempur því vörurnar hafa QR kóða sem gerir viðskiptavinum kleift að rekja aðfangakeðju þeirra.

Made in Green vottunin frá OEKO-TEX tryggir að vörurnar hafa verið prófaðar fyrir skaðlegum efnum og tryggir að þær hafa verið framleiddar við umhverfisvænar, öruggar og samfélagsábyrgar vinnuaðstæður. Þetta er ein af mörgum vottunum sem skilar Tempur fremst í flokk þegar kemur af rekjanleika, endurvinnslu og sjálfbærni.


Vörunúmer: BB-1016 Flokkar: , , , , Merki: , ,

299.900 kr.

Hreinsa
Síminn Pay Léttkaup
kr/mán
(m.v. mán)

mán.

Miðað við greiðslur á % vöxtum.

Aðeins % lántökugjald og kr. færslugjald á mánuði.

Árleg hlutfallstala kostnaðar: %.

Heildarkostnaður: kr.

Frekari upplýsingar

UmmálÁ ekki við

Þér gæti einnig líkað við…