Forsíða / Allar vörur / Mjúkvörur / Koddar / Tempur Symphony koddi medium
Tempur Symphony koddi medium
21.900 kr.
Þessi aflíðandi og tvíhliða koddi veitir þér næturlanga þrýstijöfnun og stuðning. Önnur hliðin gefur þér hina „hefðbundnu koddatilfinningu“ og hentar fyrir þau sem sofa á bakinu, en hin hliðin er aflíðandi og veitir þannig aukinn stuðning fyrir þau sem sofa á hliðinni.
Ekki til á lager
Er varan til í verslun nálægt þér?
- Ekki fáanlegt í vefverslun
- Faxafen
- Ísafjörður
- Akureyri
Vörulýsing
Um vörumerkið
ÞRÓAÐ Í GEIMNUM OG FULLKOMNAÐ FYRIR SVEFN
Tempur er eina dýnumerkið sem hefur verið viðurkennt af NASA¹ og vottað af Space Foundation². Kjarninn í hverri dýnu og kodda sem við framleiðum er hið goðsagnakennda TEMPUR® efni okkar, sprottið úr tækni frá Geimferðastofnun Bandaríkjanna, eða NASA. Seint á sjöunda áratugnum fundu vísindamenn NASA upp alveg nýtt efni sem síðan var notað um borð í geimferjunum. Stofnendur okkar gerðu sér fljótt grein fyrir einstökum möguleikum efnisins. Þeir tóku því þessa upprunalegu uppfinningu NASA og unnu í mörg ár að fullkomna hana í TEMPUR® efnið og sköpuðu þannig fyrstu seigfjaðrandi (viscoelastic) dýnu og kodda heimsins.
TEMPUR® sannaði fyrst gildi sitt í heilbrigðisgeiranum en er nú að finna í svefnherbergjum um allan heim þar sem það hefur umbreytt svefni milljóna manna. Þess vegna erum við eina dýnumerkið sem er viðurkennt af NASA fyrir að bæta lífsgæði¹. Þessi heiður aðgreinir okkur frá öðrum, fyllur okkur af auðmýkt og hvetur okkur til stöðugrar nýsköpunar, fyrir svefn sem er út úr þessum heimi - og allt á þetta upptök sín að rekja til þessara upphaflegu vísindamanna NASA.
¹ Fyrirtækið og vörur þess voru viðurkennd af NASA. Á sameiginlegum blaðamannafundi þann 6. maí 1998, viðurkenndi NASA framúrskarandi árangur TEMPUR® í að aðlaga upprunalega NASA tækni fyrir daglega notkun og bæta lífsgæði mannkyns. ² Farðu á tempur.com/spacefoundation til að fá upplýsingar um vottun.
Nánari upplýsingar
Vörumerki |
---|