Forsíða / Allar vörur / Mjúkvörur / Rúmföt / Sængurverasett / Elegante rúmföt En Bloc 2414-9 140×200
Elegante rúmföt En Bloc 2414-9 140×200
30.900 kr.
En Bloc rúmfötin eru glæsileg og fáguð með grafísku mynstri sem gefur svefnherberginu nútímalegt og elegant yfirbragð. Breiðar rendurnar birtast í mismunandi tónum sama litar og skapa fallega dýpt og látlausan kontrast.
Á lager
Er varan til í verslun nálægt þér?
- Til í vefverslun
- Faxafen
- Akureyri
Vörulýsing
Rúmfötin eru ofin úr hágæða jacquard Mako-satíni. Mynstrið er því ofið inn í efnið í stað þess að vera prentað á yfirborðið, sem gefur því vandað og fágað útlit. Mako-satínið er einstaklega mjúkt og slétt viðkomu og silkimjúkur gljáinn dregur fallega fram mismunandi áferð randanna. Dökkur grái liturinn skapar rólegt og nútímalegt yfirbragð og passar vel við bæði ljósar og dökkar innréttingar. Vandaður rennilás tryggir snyrtilegan frágang og þægilega notkun.
Um vörumerkið
Nánari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 200cm x B: 140cm x H: 0cm |
|---|




