SAMSØ sængin sameinar hágæða náttúruleg efni og vandaða hönnun til að tryggja þér sem bestu svefnupplifun. Hún er gerð úr 100% lífrænni Super Cambric bómull sem er bæði endingargóð og mjúk viðkomu. Fyllingin er 90% evrópskur Muscovy gæsadúnn og 10% smáar fjaðrir sem skapa hið fullkomna jafnvægi milli léttleika, hlýju og mýktar.
Sængin hentar sérstaklega vel þeim sem eru með ofnæmi eða viðkvæma húð, þar sem hún ber norræna Svansvottun (Nordic Swan Ecolabel) og er viðurkennd af Asthma Allergy Nordic. Með háu fyllingarhlutfalli, hlýju og einstakri mýkt tryggir SAMSØ sængin þægilegan og heilnæman svefn – og veitir um leið hugarró með ábyrgri framleiðslu og sjálfbærum efnisvali.
Danska eyjan Samsø er þekkt fyrir áherslu sína á sjálfbæra orku. Eyjan er ein grænasta í heimi. Frá henni draga Samsø dúnvörurnar nafn sitt en þær eru úr 100% vistvænni/lífrænni bómull, fylltar hitasprengdum og dauðhreinsuðum dúni frá Norvigroup í Danmörku.
Samsø eru hágæða sængur og koddar úr 100% vistvænni/lífrænni bómull, fyllt með hitasprengdum, dauðhreinsuðum moskusdúni og fjöðrum. Samsø vörulínan hefur allar viðurkenndar vottanir þar sem framleiðsla á vörum hennar er sjálfbær og vörurnar innihalda enga af þekktustu ofnæmisvöldum. Jafnvel umbúðirnar utan um Samsø vörurnar eru úr endurunnum efnum.