Verið velkomin í Betra Bak

  • Faxafeni 5, 108 Reykjavík
  • Dalsbraut 1, 600 Akureyri
  • Skeiði 1, 400 Ísafjörður

Þú getur fengið nánari upplýsingar um verslanir og opnunartíma hér.

Sendu okkur línu

Algengar spurningar

Hvert sæki ég pöntunina mína?

Húsgögn og rúm eru afhent á lagernum okkar í Korputorgi og má sækja klukkutíma eftir að pöntunarstaðfesting berst.

Smávörur eru afhentar í Húsgagnahöllinni á Bíldshöfða. Smávörupantanir má sækja um leið og SMS hefur borist um að pöntun sé tilbúin til afhendingar.

Tafir geta orðið á afhendingum á stærstu álagsdögum ársins.

Nánari upplýsingar um afhendingarmáta má finna hér.

Sendið þið heim?

Við bjóðum upp á margvíslega sendingarmáta fyrir bæði smávöru og húsgögn.

Smávörupantanir er hægt að fá heimsendar með Póstinum, í Póstbox eða á Pósthús.

Stærri pantanir eins og húsgögn er hægt að fá heimsendar upp að dyrum á höfuðborgarsvæðinu, eða á næsta afhendingarstað Flytjanda fyrir viðskiptavini utan höfuðborgarsvæðisins.

Nánari upplýsingar um afhendingarmáta má finna hér.

Get ég sérpantað vörur?

Já, í flestum tilfellum er það alveg sjálfsagt. Margir af þeim frábæru framleiðendum sem við verslum við bjóða upp á margskonar útfærslur af húsgögnum og rúmum – þ.e.a.s. aðrar en þær sem við eigum á lager.

Athugið einnig að í sumum tilfellum eru vörur eingöngu til sýnis á heimasíðu okkar og eru alltaf afgreiddar sem sérpantanir - þær vörur eru sérstaklega merktar og hægt er að sérpanta þær beint í gegnum síðuna okkar.

Endilega hafðu samband við okkur hafir þú áhuga á að sérpanta vöru sem er ekki sérstaklega merkt sem sérpöntunarvara. Sölufulltrúar okkar munu glaðir aðstoða þig eftir bestu getu. 

Get ég skilað vöru?

Svo sannarlega. Vörum sem keyptar eru í netverslun má skila innan 14 daga og fá endurgreitt án þess að tilgreina nokkra ástæðu að því gefnu að varan sé í upprunalegum umbúðum og reikningur fyrir kaupunum er til staðar.

Sérpöntunum og vörum sem keyptar eru útlitsgallaðar eða á lækkuðu verði er þó hvorki hægt að skipta né skila.

Skilmálana okkar má lesa í heild sinni hér.

Hvert sný ég mér með gallaða/bilaða vöru?

Allar fyrirspurnir varðandi ábyrgðarmál eða viðgerðir skal senda í tölvupósti á [email protected]

Til þess að flýta fyrir afgreiðslu skal taka fram nafn og kennitölu kaupanda og mynd af galla eða skemmd þegar á við (ef hægt er).

Hvaða greiðslumáta bjóðið þið upp á?

Við bjóðum upp á greiðslu með debit/kreditkorti, Netgíró, Pei og Síminn Pay.

Get ég dreift greiðslum?

Heldur betur. Hægt er að dreifa greiðslum í Netgíró, Pei og Síminn Pay.