Classico rúm 200×200 Linen Antrasite medium/firm

Classico Splendid Royal heilsurúmið frá Serta er virkilega vandað rúm sniðið að þínum þörfum.

Botninn er fjaðrandi (box-spring) samsettur úr 20 cm háum gormum sem gefa enn meiri þægindi og aðlaga dýnuna fullkomlega að líka þínum.

Splendid Royal heilsudýnan frá Serta er svæðaskipt pokagormadýna, skipt í fimm mismunandi svæði. Virkilega góður stuðningur er fyrir bakið en mýkra gormakerfi á öxlum og mjöðmum gerir svefnstellingu þína eins náttúrulega og hægt er og hreyfingar þínar eiga ekki að trufla rekkjunaut þinn. Hægt er að velja um tvo mismunandi stífleika á dýnunni, medium og firm svo nú getur hver valið fyrir sig.

Yfirdýnan er millistíf og vinnur vel á móti fjöðruninni í botninum og dýnunni. Yfirdýnan er gerð úr kaldpressuðum svampi.

Áklæðið utan um dýnuna er mjúkt og slitsterkt bómullaráklæði, ofnæmisfrítt og það andar einstaklega vel.

Rúmið fæst í gráum lit með val um mismunandi fætur. Höfuðgaflinn er fágaður og stílhreinn, hægt er að fá náttborð og bekk í stíl við rúmið.

Hæð höfuðgaflsins er 120 cm.

Athugið að náttborð eru aukahlutur á mynd og fylgja ekki með


Breidd: 200 cm    Dýpt: 200 cm   Hæð: 120 cm    

Vörunúmer: 25273025200200 Flokkar: , Merki:

Er varan fáanleg í verslun nálægt þér ?

  • Ekki fáanlegt í vefverslun
  • Faxafen
  • Ísafjörður
  • Akureyri

449.900 kr.

Ekki til í vefverslun

Frekari upplýsingar

Ummál200 × 200 × 120 cm